Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Sólin kvödd !!

Skoðið meðfylgjandi frétt.  Þarna hlýtur nú vera eitthvað um þunglyndi.  Engin sól í 3 og hálfan mánuð.

http://www.vidskiptaferdir.is/vidskiptaferdir/2009/10/s%C3%B3lin-kv%C3%B6dd-%C3%AD-qaanaaq-%C3%A1-gr%C3%A6nlandi.html


http://www.haraldureyvinds.is/frambod09/

Bæklingurinn minn er kominn á netið.  Slóðin er http://www.haraldureyvinds.is/frambod09/ 

Endilega skoðið hann.


Algjör stefnubreyting, nú á að nota peningana !

Það hefur verið málflutningur ríkisstjórnarinnar fram að þessu að lánið frá AGS, sé í raun bara til að hafa inni á banka,, til að eiga þessa peninga til að auka tiltrúnna á íslensku peningakerfi.  Það átti alls ekki að eyða þessum peningum og þar af leiðandi, myndi það kosta okkur lítið að fá þetta lán,, þ.e. bara vextina.  Höfuðstóllinn átti alltaf að sitja inni á banka og safna innlánsvöxtum.  

Búmmm,, lánið komið í hús og fyrsta setningin út úr fjármálaráðherranum er á þessa leið.  "lánið verður notað til að borga afborganir".

En það eru svo sem ekki ný vísindi , að þessir menn segji ekki allan sannleikann.

Kannski ætla þeir að beita útrásartaktíkinni á þetta,,  taka lánið,, eyða því, borga það ekki til baka og fá það að lokum niðurfellt,,,


mbl.is Nota forðann í afborganir lána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðist á lögregluna

Mikið er nú gott að sjá að það er loks farið að dæma menn fyrir þessi brot.  Ég man eftir því, þessi 4 ár sem ég var í lögreglunni, að við lentum ítrekað í því að á okkur var ráðist.  Mér er sérstaklega minnistætt eitt atvik, þar sem við þurftum að stöðva áflog sem voru í gangi í miðbæ Reykjavíkur.  Ég tók þar einn mann taki og lá á honum á jörðinni, meðan það var verið að koma honum í járn.  Á meðan á þessu stóð,, kom kærasta hans að og sparkaði af öllu afli ítrekað í höfuðið á mér.  Sem betur fer hafði hún greinilega ekki æft knattspyrnu og fékk ég því litla áverka af þessu.  

Þetta var árið 1999 að mig minnir.  Þá var ekkert gert í þessum málum.

Þetta er sigur fyrir lögregluna og vonandi verða fleiri dómar sem falla í viðlíka málum og þessu.


mbl.is Í fangelsi fyrir árás á lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafmagnslaust í Reykjavík

Þegar maður les svona frétt, þá koma upp minningar úr æskunni.  Setið heima um vetur , öll fjölskyldan í sama herbergi, verið að hlusta á útvarpið og lesa.  Rafmagnlaust,  kertaljós, heitt kakó og verið að bíða eftir að veðrinu sloti.  Í minningunni gerðist þetta hvað eftir annað, en það getur nú verið að það sé mað það eins og annað úr barnæskunni að þetta hafi nú ekki verið svo oft.  En svona var þetta stundum á Seltjarnarnesinu.


mbl.is Hluti miðborgar rafmagnslaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Póstkort

Hérna má sjá póstkortið sem ég útbjó, en ætla að öllum líkindum ekki að prenta.  Hugsa að ég sendi þetta í rafræna dreyfingu.

Endilega smellið á myndirnar og skoðið þetta.  Öll komment vel þegin.

póstkort_a5

 

 

 

Bakhliðin er svo hérna

póstkort_a5_bak


Mesta hetja Frakka fimmtug

Ég veit ekki með ykkur, en síðan ég las bækurnar um Ástrík í gamla daga að þá fæ ég alltaf vatn í munninn, þegar ég heyri minnst á villisvín.   En í alles fall,, til hamingju með daginn  : )
mbl.is Mesta stríðshetja Frakka fimmtug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland á dagskrá AGS

Loksins loksins,, Ísland á dagskrá AGS.  Það verður einkar áhugavert að sjá hvað kemur út úr þessu og ekki síður hver áhrifin verða hérna heima fyrir.  Við skulum vona að þetta verðu allt í jákvæða átt og að áhrifa fari að gæta strax hérna heima. 

 


mbl.is Ísland á dagskrá AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

McDonalds hættir rekstri !!

Þá er það officialt, það sem búið er að vera að hvísla um síðustu daga.  McDonalds hættir.  Ég kem nú ekki til með að sakna þeirra sjálfur, enda fer ég nú ekki þarna nema tilneyddur þegar börnin draga mig þarna inn.   Þau munu sjálfsagt sakna McDonalds.

Það er samt ljóst að efnahagsástandið er í sífellu að fella fleiri og fleiri fyrirtæki. 

 


mbl.is McDonald's hættir - Metro tekur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um hvað snýst prófkjörið ?

Um hvað kemur prófkjörið til með að snúast á Nesinu.  Ég tel að það sé alveg ljóst að stærsta málið á næsta kjörtímabili, verði það hvernig staðið verði að rekstri bæjarins.  

Eitt af mínum helstu baráttumálum verður eftirfarandi :

Lægstu mögulegu álögur á íbúa Seltjarnarness hverju sinni.

Frestun á framkvæmdum framar skattahækkunum.  Ég tel að við þurfum að gæta aðhalds í rekstri bæjarins og velja vel þær framkvæmdir sem þarf að fara í á næstu árum.  Það gæti jafnvel verið skynsamlegra að einblína frekar á viðhaldsframkvæmdir frekar en nýframkvæmdir á meðan að ástandið er eins og það er.

Ég ætla á næstu dögum að stikla á stóru yfir þau málefni sem ég kem til með að hafa í öndvegi í komandi kosningarbaráttu.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband