Færsluflokkur: Dægurmál
Lögreglan á meira skilið
19.10.2009 | 11:00
Það ætla ég að vona að það fari að leysast kjaradeilu lögreglumanna og ríkis. Ég starfaði sjálfur í lögreglunni um nokkura ára skeið í afleysingum. Ég man það mjög vel hvað mér brá þegar ég fékk fyrsta launaseðilinn. Skítalaun fyrir erfiða og mikla vinnu. Lögreglan á miklu meira skilið. Lögreglumenn á Íslandi eru að skila virkilega góðu starfi og ef það er einhver stétt sem á það skilið að vera á almennilegum launum, að þá eru það lögreglumenn.
Kjaradeila lögreglumanna og ríkis í járnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hamarinn tók óvænta stefnu.
19.10.2009 | 09:37
Ég hélt að ég væri alveg kominn með þetta í upphafi 3ja þáttar Hamarsins. Þ.e. búinn að finna út plottið og hver gerði þetta. Svo fær maður þennan curveball þarna í lokin og þetta setur nú smá spennu fyrir lokaþáttinn. Fínt sjónvarpsefni þarna á ferð, á annars steindauðu sunnudagskvöldi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fréttatilkynningin komin af stað
16.10.2009 | 14:19
Jæja,, þá er maður búinn að koma fréttatilkynningunni út.
http://www.mbl.is/mm/frettir/kosningar/2009/10/16/vill_5_saetid_a_seltjarnarnesi/
Vill 5. sætið á Seltjarnarnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig myndi þetta líta út í Danmörku
16.10.2009 | 10:58
Icelandair ætlar að nefna allar vélarnar sínar eftir fjallanöfnum. Ég gat nú ekki annað en hlegið upphátt af þeirri tilhugsun, ef SAS í Danmörku tæki upp sömu stefnu. Nefna allar vélarnar eftir dönskum fjöllum.
Listinn væri svona:
Himmelbjerget I, Himmelbjerget II, Himmelbjerget III og svo framvegis.
hehehhe
Flugvélar Icelandair munu framvegis bera fjallanöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skjárinn að fara að rukka
16.10.2009 | 10:54
Jæja,, það hlaut að koma að því. Skjárinn er að fara að rukka áskriftargjöld. Það verður fróðlegt að sjá hversu margir koma til með að halda trúnaði við stöðina og kaupa sér stöðina. Nú fyrst ríður á hjá þeim að sýna fram á almennilega dagskrá, svo þeir geti þá keppt að alvöru við hina áskriftarstöðina.
Ég veit ekki hvort mörg heimili á landinu í dag, hafi bolmagn til að eyða stórum fjármunum í það að kaupa sér áskriftir að sjónvarpi.
Kannski er það rangt mat hjá mér,, kannski er hellingur af fólki tilbúið að eyða 10 þúsund í stöð 2 og 2000 kalli í skjáinn ofan á þúsundkallana sem það kostar að hafa Rúv í hverjum mánuði.
Þetta á víst ábyggilega eftir að koma í ljós. Vonandi gengur þetta allt upp hjá Skjánum, það væri sjónarsviptir að sjá hann hverfa af markaðnum.
SkjárEinn verður áskriftarstöð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ísfirðingarnir fara sömu leið og Seltirningarnir
14.10.2009 | 11:18
Gaman að heyra af því að Ísfirðingarnir ætli sömu leið og við Seltirningar, þ.e. að halda prófkjör. Það er líka áhugavert að sjá að þeirra prófkjör fer fram í febrúar, en okkar prófkjör fer fram núna á miðju rjúpnaveiðitímabili,, þann 7. nóvember.
Það er gott að hafa tímann fyrir sér í þessu, hugsa að það skili sér í vandaðri stefnuskrá og málefnavinnu fyrir flokkinn fram að kosningunum sjálfum.
Ísfirskir sjálfstæðismenn í prófkjör | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gengur vel að safna undirskriftum
12.10.2009 | 16:34
Ég byrjaði um síðustu helgi að safna tilskyldum fjölda undirskrifta svo að ég komist inn í prófkjörið hjá Sjálfstæðisflokknum á Nesinu. Það hefur gengið vonum framar og ég er kominn með 26 nöfn á blað. Ætla að ná mér í nokkur nöfn í viðbót núna í vikunni og skila svo listanum inn um næstu helgi. Hvet alla sem geta, að taka þátt í prófkjörinu og hjálpa til við að móta framtíðina á Seltjarnarnesinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)